jábs er mætt aftur til vinnu eftir fína helgi í sveitinni. Fórum í Jaka ferð í Skorradal og létum okkur líða vel í búðstað þar. Það var reyndar mest lítið gert, farið var í steinakast á vatninu, gönguferðir, spilað og drukkið bjór. Það þarf greinilega ekki mikið til að skemmta okkur Jökum. Framundan er svo EKKERT ótrúlegt en satt þar sem það hefur bara verið ein helgi frá áramótun sem hefur ekki verið afmæli,partý eða annað skemmtanahald hjá okkur. Kannski að fjárhagurinn batni með komandi rólegheitum. Er að bíða eftir að geta stimplað mig út, nenni ekki að byrja á neinu verkefni núna þar sem það svo stutt eftir af vinnudeginum. Þá er ekkert annað en að gera en að hanga á netinu. Sem er reyndar hundleiðinleg. Ble ætla að hætta þessu.