þriðjudagur, janúar 11, 2005

Fyrir utan að það er mjög stutt í þráðinn þegar það kemur að ákveðnum hlutum hér í vinnunni og geðheilsan er alvega að fara í kjölfari þessara hluta, eins og það er ekki nóg, þá eru liðamótin í mér að bregast mér núna. Á ákveðnum tímum ársins þegar kuldi er mikill þá get ég ekki notað hnéin og axlirnar á mér vegna verkja, og hreyfigetuleysis. Ég get td. ekki lyft hægri hendinni nema til hálfs núna og geng niður stiga eins og ég sé áttræð. Þetta þýðir ekkert annað að byrja enn og aftur á að bleiku pillunum.

 
hits.