Afmæli, afmæli, afmæli og fleiri afmæli
Já það er ekki mikið að gerast á þessum bæ. Búin að komast að því janúar er afmælis mánuður, er búin að fara í tvö stórafmæli, 25 og 50 ára, og á boð í tvö önnur 25 ára afmæli þessa helgi svo fá sé nefnd. Svo er langamma mín að verða elsti lifandi Íslendingurinn sem hefur lifað hingað til. Hún verður 108 ára blessuð konan búin að lifa 3 aldir og 2 styrjaldir og hlustar á MTV. Gera aðrir betur en það !