Held að ég sé komin með sykursjokk, eins og alltaf þá er allt fljótandi í nammi og konfekti í vinnunni og auðvitað er núna alveg extra mikið nammi vegna jólanna. Eins og sumir vita þá er ég algjör nammi grís og frekar erfitt að halda aftur af sér.
Í dag voru svo litlu jólin hjá okkur í byggingu 12. Héldum þau í flugskýlinu. Allir mættu með pakka og svo var matur, kalkúnn, svínakjöt og fleira gúmmsilaði. Framkvæmdastjórinn kom með skemmtarann sinn sem er víst hefð á hverju ári og spilaði fyrir okkur og svo kom Hreimur og söng jólalög.
Brandari sem Hreimur sagði:
Af hverju eru dvergar alltaf svona glaðir og flissandi þegar þeir ganga á grasi ?
Af því að grasið kítlar þá á pungnum.