fimmtudagur, desember 09, 2004

Ég er svo þreytt og mig langar heim að sofa. Fór að sofa um eitt í gær og rétt druslaðist á fætur klukkan hálf níu. Var mætt klukkan 9 í vinnuna og þar tók á móti mér leiðinleg verkefni. Erum að fá nýja útgáfu af bókunarkerfinu með tilheyrandi aukavinnu og veseni. Það á að prufukeyra allt dótið á eftir og auðvitað var ég látin um að athuga hvort allt virkar. Þarf að fara í gegnum veit ekki hvað margar bókanir og ath. hvort þær séu í lagi - gaman gaman eða þannig. Verð líklegast til kl 7 í kvöld hérna og þá þarf ég að bruna í Smáralind og vera þar til 10.

Meira ruglið þessi jólaopnun af hverju í ósköpunum þarf að vera opið í verslunum í 12 tíma. Að fenginni Kringlu og Smáralindar reynslu þá borgar sig ekki að hafa opið svona lengi alla vega ekki fyrr en vikuna fyrir 24. Íslendingar eru geðveikir þegar það kemur að búðaopnunartímum, það er opið 7 daga vikunar og vinnuskylda verslunarmanna er komin í 170 tíma á mánuði og meira í des. (á meðan venjan er 150-160 tímar) og það er ekki nóg fyrir okkur kaupglöðu íslendinga við viljum helst hafa opið 24 tíma á sólarhringi.
Það er alveg ótrúlega fyndin að sjá fólk þyrpast í Kringluna og Smáralind eftir að það hefur verið lokað vegna frídaga, allir með Mollafráhvarfseinkenni. Án erinda hangir fólk í Mollinu með gargandi krakka. Sorglegt að fjölskyldudagur þýðir að fara í Mollið.

Veit ekki tilganginn með þessum skrifum en ég bara þoli ekki íslendinga í búðum. Þeir eru leiðinlegir og dónalegir.

 
hits.