fimmtudagur, desember 30, 2004

Þessi jól voru allt of stutt, var að vinna til 14 á aðfangadag þannig ég fékk alveg hálfan dag í jólafrí þar sem ég tel helgina ekki teljast sem jólafrí. Þrátt fyrir stutt frí þá tókst mér að borða og sofa alltof mikið. Ég þurfti reyndar á svefninum að halda en get reyndar ekki sagt að hafi þurft á öllum þess mat að halda. Allavega bættist e-ð við forðabúrið með öllu þessu áti :os Flensan er búin að ná tökum á samstarfsfólki mínu og börnum þeirra. Þar er varla sála búin að mæta til vinnu þessa vikuna, mig vantar allavega ekki verkefnin á meðan þar sem öllu er hrúað á mig á meðan. Ég tók mér frí á morgun og á mánudag, ætla að vera á Akureyri um áramótin. Hef ekki verið þar yfir áramót í 10 ár!


GLEÐIÐLEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ LIÐNA !

 
hits.