Komin heim
Fyrir utan ömurlega þjónustu hjá nýja innritunarfyrirtæki Icelandair á Heatrow og seinkun á vélinni vegna bilunar þá var helgin mjög fín. Eyddi helginni í góðu yfirlæti hjá Palla og Roland í London. Alltaf gaman að heimsækja þá, fór til Cambridge, í leikhús, út að borða, verslaði. Var komin heim kl 3 í nótt, mætti svo í vinnu eftir hádegi meikaði ekki að mæta fyrr.
Skrýtið að vera komin aftur til Íslands, ekkert breyst fyrir utan það að þegar ég mætti í vinnuna í morgun þá var skrifstofan mín búin að fá andlislyftingu, búið að mála, skipta um gardínur, ný tölva og skjár á borðinu mínu og bolli með nafninu mínu á. Alveg eins og ég væri að byrja í nýrri vinnu.