föstudagur, nóvember 19, 2004

Dagurinn byrjar ekki vel

Vaknaði við brjálað rok úti í morgun, stólar að fjúka af svölunum hjá mér. Fór svo grút sifjuð í tíma til að hlusta á kennarann þilja upp þýskamálfræðireglur. Klukkan 10 er komið brjálað veður rigning og snjókoma til skiptis. Klukkan er núna 12 og það er ennþá grenjandi rigning og ég er að fara til Salzburg á eftir. Eins og alltaf og um allar helgar þá er skíta veður hérna og þá sérstaklega þegar maður er búinn að plana að fara eitthvert. Jæja það þýðir víst ekkert annað en bara að klæði sig vel, duga lítið að kvarta. Veðrið batnar allavega ekki við það.

 
hits.