Nýir fætur óskast !
Mig vantar nýja fætur, ég er búin að ganga svo mikið. Held að ég geti ekki gengið meira. Fór til Munchen í gær og svo fór ég til Ruhpoling í dag. Ruhpoling er lítill bær við landamæri Austurríkis. Fallegasti bær sem ég hef séð, umkringdur af fjöllum, væri alveg til í að búa þarna. Á veturnar er Ruhpoling skíðabær. Ég fór með Per og Kristie í “fjallgöngu” Það voru reyndar göngustígar upp fjallið en það var samt alveg helv... erfitt að ganga upp. Stígurinn var nánast lóðréttur upp en erfiðið var þess virði.
Setti inn nokkrar myndir frá Ruhpoling