Kalt kalt kalt
Ojjj hvað það er orðið kalt, í dag er bara 2 stiga hiti, fyrir viku var 25 stiga hiti. Þetta er bara ekkert betra en á Íslandi.
Ég fór til Munchen á laugardaginn, og auðvitað var grenjandi rigning og skítakuldi. En mér til mikillra gleði þá eru H&M búðir á hverju horni þarna. Verslaði reyndar ekkert því þetta var skoðunarferð með Goethe. Munchen er rétt svo klukkustundar lestarferð frá Prien svo ég kíkji þangað aftur í betra veðri.
Ég er að fara í gönguferð með Goethe á eftir undir leiðsögn Helgu. Það verður eflaust fínt, er að fara að skoða kirkju og eitthvað safn.
Fyrir utan kuldan þá er allt fínt að frétta.