Í gær var síðasti kennsludagur þessar mánaðar, á miðvikudag byrjar svo nýtt námskeið. Síðasta þriðjudag var svo haldið kveðjumatur og partý fyrir þá sem eru að fara heim. Flestir sem ég hef verið með fara í dag :o( Það koma bara 6 nýjir nemendur í næstu viku þannig að það verður enn fámennara hér. Við fengum líka þær fréttir gær að það á að loka 16 Gothe skólum hér í Þýskalandi og skólinn í Prien einn af þeim.
Ég er að fara til Munchen á eftir og eins og alltaf þegar ég fer e-ð þá er rigning og kuldi og auðvitað er það ekkert öðuvísi í dag. Það er búið að vera sól og hita síðustu daga og auðvitað þurfti veðrið að breytast þegar ég er komin í frí !