laugardagur, október 16, 2004

Alltaf rigning á laugardögum.....

Ég fór og túristaðist í dag, fór með David sem er frá Ástralíu og Kristi frá USA til Salzburg og Rosenheim. Eins og alltaf þegar við förum eitthvert þá er rigning og engin undanþága frá því í dag. Þrátt fyrir kulda og ausandi rigningu þá létu við það ekki stoppa okkur. Prien er svo leiðinlegur staður að hver stund er nýtt til að fara eitthvert annað. Við gengum um allan miðbæ Salzburgar, fórum og skoðuðum gamalt virki frá 13. öld og fleiri gamlar og sögulegar bygginar. Þegar við vorum komin til Prien í lestinni nenntum við ekki að fara úr þar svo við fórum til næstu borgar við Prien sem er Rosenheim og fengum okkur að borða þar.

Ég er að fara í próf á mánudag svo það verður víst lítið gert annað en að læra á morgun :o(

 
hits.