sól sól skín á mig
Mér finnst ósanngjarnt að aðrir geta tekið sér frí og hætt snemma að því að gott veður en ekki ég af því að það er svo mikið að gera hjá mér :o( Það eru allir farnir af skrifstofunni nema 3 af 10. Mig langar í sólarfrí, ég var einu sinni að vinna á Bæjarskrifstofunum í Kópavogi, þar var gefið sólarfrí einu sinni á sumri. Allri sjoppunni bara lokað og símsavarinn settur á: Lokað vegna sólarfrís ! Mér finnst að þetta ætti að vera inn í kjarasamningum allra.
Annars vorum við að hugsa um að skreppa í stutta útilegu með Ásu og Sigga um helgina. Ég ætla að reyna að panta sól og hita þangað sem við förum, sem er ekki alveg komið á hreint enn.