þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Öll starfsemi Skrifstofu Flugfélagsins stöðvaðist í morgun þegar 757 þota lenti á Reykjavíkurflugvelli og stöðvaðist fyrir utan skrifstofu FÍ (beint fyrir framan gluggan minn). Lögreglubílar komu á rosahraða með blikkandi ljós og hellarins fylgdarliði Bandaríska sendiráðssins. Enginn annar en Clinton steig úr vélinni. Gat reyndar lítið séð hann fyrir jakkafataklæddu lífvörðunum sem stöðu vörð um hann.

Þegar Clinton var farinn fékk ég að fara og skoða vélina með smá klíkuskap. Vélin var víst í eigu vinar Clintons sem kom með honum. Allt innréttað í rauðu og gylltu flaueli, með risastórum og mjúkum sófum, tveimur svefnherbergum með sturtu og öðru tilheyrandi, eldhús og gvuð má vita hvað. Ég gæti alveg vanist því að ferðast á þennan vegu!!!!!!

 
hits.