Skógar
Við Himmi fórum ásamt fríðu föruneyti til Skóga um helgina. Lögðum af stað eftir vinnu á föstudag. Tjölduðum í þessu fína roki og héldum heim á sunnudag í grenjandi rigningu þrátt fyrir leiðinlegt veður var þetta frábær helgi. Partýtjaldið sem við höfðum með okkur kom sér vel að notkum vegna veðurs. Á Selfossi rakst ég tvífara Boga, á Skógum rákumst við á óeinkennisklædda fíkiefnalögreglu menn og lögregluhundinn Aragus sem gerðu líkamsleit á öllum karlmönnum hópsins, geri ráð fyrir að við stelpurnar sluppum við líkamsleit þar sem það er eflaust ekki viðeigandi að að karlmanns lögregla sé að þukla á ungum stelpum ; Að sjálfsögðu fannst ekki neitt annað en hnetupoki sem leyndist í vösunum hans Himma.