Himmi skildi mig eftir eina yfir helgina, hann stakk af norður. Hann ætlar að göngugarpast e-ð í sveitinni. Frá því hann fór hef ég ekki haft neitt betra gera en að þvo þvotta og skrúbba íbúðina hátt og lágt allavega er allt orðið voða hreint og fínt.
Ég ætla passa litla varginn hans Sigga bróður, hana Bergþóru, í dag. Það verður gaman :) +A morgunn er svo vinna í Smáralind. Ég skil bara ekki hvernig mér tekst alltaf að segja já þegar þær hringja og biðja mig um að bjarga sér og vinna einhverjar vaktir. Næst verður sagt NEI !! Eftir vinnu á sunnudag verður svo Himmi minn kominn heim, og þá fæ ég knúsið mitt aftur.
Ég er búin að sækja um skóla í Þýskalandi í bæ sem heitir Prien, sem er smábær við Austurrísku landamærinn. Ég vona bara að þeir vilji fá mig. Fæ að vita það á næstu dögum :)