Ég var að koma heim frá Grænlandi
Flugfélag Íslands bauð mér til Grænlands og auðvitað fékk ég þá til að leyfa mér að taka Himma með. Þetta var boðsferð fyrir ferðaskrifstofur.
Við flugum í gær (fös.)til Kulusuk og þaðan héldum við áfram í Þyrlu yfir til Ammasalik og gistum þar eina nótt. Áttum að fara í hundasleðaferð en vegna rigninga s.l. daga þá gátum við ekki farið, fórum í stað þess í bátsferð um ísjakana. Þetta er alveg ótrúlegt samfélag. Að okkar mati eru allir bæjarbúar alkólistar og meirihluti bæjarbúa á bótum. Hálf sorglegt hvernig búið er að fara með þetta samfélag með vestrænum áhirfum. Um miðjan dag á föstudaginn voru bæjar búar byrjaðir að drekka og voru ekki hættir þegar við vöknuðum morguninn eftir um 8 þegar við mættum í morgunmat. Á barnum á hótelinu var fólk að drepast og ælandi til skiptis. Grænlendingar láta okkur íslendina líta nokkuð vel út í miðað við þá. Meðfram öllum stígum og vegum voru svo tuborg dósir, prince sígarettupakkar og haribo nammibréf - rusl út um allt. Að fara til Grænlands er eins og að koma í annan heim, mæli eindregið með ferð þangað.